31.8.2008 | 18:37
Taco Bell og inneflin rokka
Jæja gott fólk. Í gæ bauð Fríða vinkona mér á Taco Bell sem er ekki frásögu færandi en það er í fyrsta skipti sem ég smakka Taco Bell, ó já..aldrei farið þangað áður. Fríða sá um að panta fyrir mig og ekki hafði ég hugmynd um hvað hún var að panta. En þegar ég byrjaði að borða matinn þá fékk ég vægt shjokk út af hvað sósan er sterk!!! Ég logaði að innan og það munaði engu að ég hefði hlupið út og leitað að slökkvistöð Hafnarfjarðar..ÁN GRÍNS. Lungun og rifbeinin voru á fullu í rokkinu eins og það væri versta tekknó tónlist í botni!!! Ég átti ekki til orð. Svo koma Fríða og beit í matinn og sagði: Hva, þetta er ekkert sterkt...ég mátti nú ekki vera minni kelling en hún og tók því 2 bita til viðbótar.....bíð þess aldrei bætur.
Skólinn byrjar hjá mér á morgun klukkan 08:30 og hlakka ég til að takast á við það.
Hafið það gott og eigið þið góða vinnuviku.
Æm át.
Um bloggið
Guðmundur Þór Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Taco Bell er best í heimi......
Gummi... ertu hættur að reykja?
Kolbrún Jónsdóttir, 31.8.2008 kl. 19:18
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 31.8.2008 kl. 20:25
Anna Gísladóttir, 1.9.2008 kl. 04:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.