Húsmæðraorlof eða Piparsveinaorlof:)

Hæ hæ. Ég er að fara til Danmerkur í fyrramálið. Jabba dabba dú. Get ekki beðið sko. Það er

búið að vera ansi gaman að pakka niður í tösku skal ég segja ykkur. í gær kom Sandra vinkona mín

og hjálpaði mér og hún gerði allt klappað og klárt, og svo í dag var taskan bara ekki nóg. Þannig

að ég hringdi í Möggu vinkonu og að sjálfsögðu var hún til í að lána mér tösku eins og alltaf, en

svo fattaði ég það að systir mín á svo stóra og góða tösku að ég fékk hana í staðinn. Hvað gera

systkini ekki fyrir hvort annað, ég segi það nú bara. Svo kom ég heim og tók allt upp úr töskunni

sem við pökkuðum niður í, í gær og setti í þessa stóru góðu tösku..nei nei, þá bara var hún ekkert

svo stór og góð!! Halelúja systir. Og hvað gera bændur þá. Jú jú, að sjálfsöðgu gat ég reddað

því..NEMA HVAÐ hehe. Já, svona byrjiði að hneigja niður fyrir mér...ÉG BÍÐWink. En núna er allt komið

niður í tösku og handfarangur og svo er það bara að fara að sofa, vona að ég sofi þetta flug ekki 

af mér. Það er bara HRÆÐILEGT. En jæja, ég er að fara til Danaveldis og verð þar til mánudags,

og mér skilst að það sé búið að plana og plana dagana þegar ég verð þar. Og ég hlakka bara

til þess sko. Svo má náttúrulega ekki gleyma að það verður að STJANA við litlu prinsessuna,

Kolla og Berta..eruð þið að sjá þetta?? *hvolpa augu*. Góða nótt og hafið það gott.

Æm át 


Er tölvulaus....ER VÆNGBROTINN

Hæ hæ. Er tölvulaus heima get því EKKERT gert. Hvað er hægt að gera ef maður hefur ekki

tölvu?? Kannski að ég kynnist sjónvarpinu mínu. Er að leita að einhverjum sem getur

straujað tölvuna mína. Hún var með svo mikinn vírus að ég gat ekki slökkt á henni sko.

Jæja, hafið það gott fyrir framan ykkar TÖLVU!!! GARG!!!

Æm át.


Þvílíkur Bóndadagur

Hæ hæ. í dag ákvað ég að gera minn eigin Bóndadag því eg á engann bónda. Eftir vinnu tók ég

tvær dvd myndir á leigu og fór og sótti pizzu á eldsmiðjuna (BESTU PIZZUR Í HEIMI). Byrjaði

að horfa á myndina number 23 með Jim Carrey, sem mér þótti nokkuð góð þar sem ég fíla ekki

Jim blessaðan Carrey, svo horfði ég á nágranna og snædd mér gómsætri pizzu með þessu. Sló

svo á þráðinn til Danmerkur og talaði við Kollu vinkonu mína, alltaf jafn gaman að heyra í henni,

og hún hélt að ég hafi fengið vírus í tölvuna mína út frá klámsíðum...en Kolla mín, ég er

SAKLAUSASTA nunna hvað solleis síður varðarWink. Svo horfði ég á I NOW PRONOUNCE YOU

CHUCK & LARRY sem er snilldar mynd, enda eikkað ekta fyrir mig. Mæli sko með henni!! Kristín

litla frænka er 18 ára í dag. Innilegar hamingjuóskir með daginn sweety pæ. Svei mér þá hvað

þú ert fljót að eldast....það var eins og ég hafi fengið þig í fangið Í GÆR!!! Og samt er ég ekki

orðinn gráhærður..múhahah. I love u girl. Jæja, ætla koma mér á koddann. Hafið það gott

og góða helgi.

Æm át.


VÍRUS VIÐVÖRUN

 Hæ hæ. Þið sem eruð á msn-inu mínu, vinsamlegast EKKI opna það sem "ég er að

senda ykkur. Þetta er VÍRUS!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Og sá/sú sem kann að laga þetta er sjálfboðinn

heim til mínSmile Ekki hef ég GLÓRU hvernig á að laga svona.

Hafið það gott.

Æm át.


Gay þykir dónalegt orð

Hæ hæ. Var að lesa í blaði um daginn um einkanúmer, og þar kom að orðið Gay þætti dónalegt

sem ég skil ekki...kannski því ég er gay, but anyway fyrir ykkur sem ekki vitið en þá þýðir

orðið Gay líka hamingjusamur. Orðið Gay má ekki láta á númeraplötu því það er dónalegt en

mér var bent á það að það er bifreið með einkanúmerið BLOWME..HALLÓ..og hvort orðið er

dónalegra. Svo var ein sem benti mér á að orðið Djö er á einni bifreið, og henni þótti það

hræðilegt...að keyra í umferðinni og sjá orðið Djö fyrir framan sig, en ég hef aldrei séð þetta.

Að vísu eru ekki allir sem þola orðið Gay, djö og blow me.....en ef að Blowme má leyfa á

númeraplötu því þá ekki Gay?? Maður spyr sig. Það er ekki eins og viðkomandi þurfa að auglýsa

sína kynhneigð, þar sem orðið þýðir líka hamingjusamur. En auðvitað eru margir hverjir sem fara

EKKI í orðabók til að tékka á því. Ég er ekki að fá mér einkanúmer, ætla taka það fram. Hafið

það gott og við heyrumst fljótt aftur.

Æm át.

 

 


Jólin kvödd með stæl

Jæja, þá er þrettándinn í dag. Ég var með heljarinnar partí í gær, svona þrettándagleði. Þar

sem ég bý í einstaklingsíbúð(prinsessu-íbúð) þá komu 13. manns til mín, en að sjálfsögðu var

ÞRÖNGT, en þröngt mega sáttir sitja og allir skemmtu sér vel...vona ég. Ég skemmti mér

konunglega. Það var sungið og hlegið, bara brill kvöld. En núna segi ég: ALDREI, AFTUR...

Kannski!! Ég veit að kannski þýðir ekki fyrir mig að segja í Danmörku..en þá verður heldur

betur tekið á því skoSmile. Ég hitaði aðeins upp fyrir þær í Danmörku þegar við vorum í

MSN-saumóWink Stúlkur 38. dagar í mig. Þegar ég vaknaði í dag þá langaði mig til að ÆÆLLAA.

Djö viðbjóður sko, vínflöskur, bjórdósir út um allt sko. Skellti mig í bleiku hanskanna og fór

að vaska upp og tilheyrandi og það tók mig 2 tíma í þessari litlu íbúð!! Heyriði í mér dömur

mínar og herrar. TVEIR TÍMAR...thank you very mush. Jæja gott fólk, ætla ganga frá

Jóladótinu og koma mér upp í sófa. Hafið það gott.

Æm át.

 


Áramótin..........Bónorð......Klessti bílinn

Jæja, á gamlárskvöld byrjuðum við að horfa á skaupið..sem var LÉLEGT!! Svei mér þá nenni sko

ekki horfa á það á ári liðinu. Svo var drukkið og drukkið og drukkið, fórum á Organ rétt um 2 í

þessari BRJÁLUÐU rigningu, ég blotnaði í gegn!! Samt er ég í 2 mín að labba. Skemmti mér

konunglega á Organ. Ég fer að tala við einn strák við barinn og hann bara fór á hné og bað mig

um að giftast sér!!! HALLÓ!! Ég hélt að hann væri að djóka þannig að ég hló og hló að honum

svo sá ég svipinn á honum, þá var honum barasta alvara, en ég bað hann vel að lifa (ef ég

má stela þessari setningu) *hvolpa augu*. Svo hélt ég áfram að djamma til lokunar, eða

til klukkan 7 (minnir mig)  enda sannur Íslendingur á djamminu. Á nýársdag gat ég varla hreyft

legg né lið, var gjörsamlega DÁINN! Staulaðist á American Style og fékk mér að borða,

enda nauðsynlegt eftir svona djamm. Í dag gerði ég líka dáldið sem ég hefði átt að vera

löngu búinn að gera: Ég einfaldlega skráði mig úr Þjóðkirkjunni.....OG HANA NÚ!. Ætlaði að

gera þetta fyrir 4rum árum..en þið vitið. Ég var í jólaboði um daginn og þegar ég var að

fara þá var SNJÓR, þannig að þegar ég er að bakka úr stæðinu þá rekst ég á snjóskalf

(að ég held) en þá kemur maður og bankar á gluggann (JÁ, MÉR BRÁ) og segir við mig:

Þú klesstir á bílinn hans pabba, ég segi: Hvar sérð þú bíl?? Þá skóf ég smá af snjóskaflinum

og þar var bíll undir honum, það sást ekki einu sinni í dekkinn sko. En sem betur fer er

þetta lítið. Jæja, gott fólk. Ætla fara í draumlandið. Vinna á morgun. Hafið það gott.

Æm át.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla

Jæja, ég vill óska ykkur gleðilegs nýs árs og takk fyrir það gamla. Góða skemmtun í kvöld

fyrir þá sem eru að fara á DJAMMIÐ.....ÉG FER POTTÞÉTT. Áramóta koss/knús.

Æm át.


Jólin og guð blessi kanínur

Hæ hæ. Jæja, núna er hann búinn að vera KALDUR!! Í gær fór hann alveg upp í 13 gráður..SHJITT

En þar sem sokkarnir mínir eru úr kanínu-ull þá urður mínar tær ekki kaldar...sem betur fer.

Alltaf blessi ég kanínur fyrir það þegar mér er heitt á tánum. Um jólin er ég búinn að hafa

það einum of gott (ef það er hægt) hef bara borðað og sofið út í eitt. Aðfangadagskvöld

var mjög skemmtilegt í faðmi helmings af fjölskyldunni, skellti mér í miðnæturmessu í

Hallgrímskirkju sem er varð til þess að ég rann auðvitað í spíkat og reif buxurnar mínar:(

Þær rifnuðu í klofinu...ætti ég að láta gera við þær eða kaupa nýjar...hmm. Svei mér þá

ekki vissi ég að ég væri svona liðugur....ég er bara fimleika-queen sko. Ég fékk æðislegar

jólagjafir en að sjálfsögðu þurfti ég að skipta, er það ekki alltaf svoleiðis. Fór í eitt jólaboð

/afmælisveislu á jóladag og það var bara gaman. Á gamlárskvöld verð ég með partí sem

hefst kl:22 og við byrjum að horfa á skaupið, ætli það verði skemmtilegt í ár? Skaupin

hafa ekki verið skemmtileg síðan 1990!! THAT'S IT!! Jæja, gott fólk. Hafið það gott.

Æm át.


Þvílíkt óheppinn

Hæ hæ. Ég fór um daginn til vinkonu minnar, sem er ekki frásögu færandi nema hvað að ég

legg bílnum alveg við göngustíg, svo opna ég hurðina og það kemur vindhviða og svo heyri ég

bara "ÁI"..ég stíg út úr bílnum og þá sé ég konu sem hurðin fauk á (hún var að skokka) og

konu greyið fer út í runna, ég spyr: er allt í lagi með þig? Konan svarar: nei, er að drepast

í kálfanum. Þá fer hún að tala um tjón, og ég segi: er hægt að gera tjónaskýrslu á fólki?

En alla vegna þá gat blessunin gengið eftir þetta og hún ætti að vera með lýsiljós ef hún

ætlar að skokka í myrkri. Er það ekki í lögum annars? En annars sést ekkert á hurðinni á

mínum Romeó. Elsku bloggvinir og aðrir: Ég óska ykkur gleðilegra jóla og hafið það sem

allra best.

Æm át.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Þór Jónsson

Höfundur

Guðmundur Þór Jónsson
Guðmundur Þór Jónsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Barcelona 062
  • Barcelona 061
  • Barcelona 060
  • Barcelona 059
  • Barcelona 058

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband