22.12.2007 | 14:02
Þvílíkt óheppinn
Hæ hæ. Ég fór um daginn til vinkonu minnar, sem er ekki frásögu færandi nema hvað að ég legg bílnum alveg við göngustíg, svo opna ég hurðina og það kemur vindhviða og svo heyri ég bara "ÁI"..ég stíg út úr bílnum og þá sé ég konu sem hurðin fauk á (hún var að skokka) og konu greyið fer út í runna, ég spyr: er allt í lagi með þig? Konan svarar: nei, er að drepast í kálfanum. Þá fer hún að tala um tjón, og ég segi: er hægt að gera tjónaskýrslu á fólki? En alla vegna þá gat blessunin gengið eftir þetta og hún ætti að vera með lýsiljós ef hún ætlar að skokka í myrkri. Er það ekki í lögum annars? En annars sést ekkert á hurðinni á mínum Romeó. Elsku bloggvinir og aðrir: Ég óska ykkur gleðilegra jóla og hafið það sem allra best. Æm át. |
Um bloggið
Guðmundur Þór Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Einar, afhverju ætti ég að hugsa ef aðrir geta ekki hugsað fyrir sjálfa sig?
Guðmundur Þór Jónsson, 22.12.2007 kl. 15:22
Þetta kallar maður að taka einhvern með hurðinni......í bókstaflegri merkingu:) Greyið konan, vonandi varð henni ekki meint af þessu:)
Gleðileg jól Gummi minn og hafðu það sem allra best um jólin
Berta María Hreinsdóttir, 22.12.2007 kl. 15:33
að halda í hurðir í roki var barið inn í hausinn á mér þegar ég var lítil, en greyið konan.. ekki mundi ég samt skokka í hálku, kulda og myrkri..
Linda (IP-tala skráð) 22.12.2007 kl. 16:27
Gleðileg jól
Anna Gísladóttir, 24.12.2007 kl. 01:25
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.12.2007 kl. 15:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.