13.10.2007 | 16:53
Unaðslegt eða þannig sko
Hæ hæ. Ég var á næturvakt í nótt og þegar ég kom heim um klukkan 08:30 í morgun og ætlaði að fara að sofa, nei nei, þá datt nágranna mínum í hug að fara spila á PÍANÓ og GÍTAR!! Sem er náttla bara UNAÐSLEGT þegar maður er að reyna að sofna sko. En hvað um það þar sem ég er að fara á FEITT djamm í kvöld þá er búið að vera lítið um svefn, eða kannski svona 3-4 tímar, og ef ég á að geta haldið út kvöldið þá bara verð ég að fá að vita hvað ég á að blanda í?? Meina Magic er það gott með víni?? Plís komið með uppástungur mínu kæru blogg vinir![]() |
Um bloggið
Guðmundur Þór Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 29167
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ÆÆÆ. Langar ekki að upplifa það. Ég er að fara í sjötugs ammæli núna kl 18. En ég skemmti mér konunglega...sjáum bara til með það honey. koss knús.
Guðmundur Þór Jónsson, 13.10.2007 kl. 17:27
Kæra Frú Fjóla.... eins og þú sjálfsagt veist, þá get ég lítið hjálpað þér með brennivínstengdar uppástungur.... þarna ert þú miklu reyndari en ég:)
Góða skemmtun í kvöld:)
Hvernig er með nóvember??? Á ég að renna til Þýskalands og kaupa meiri bjór, múhaa
Kolbrún Jónsdóttir, 13.10.2007 kl. 17:28
Bara einn tveir tekíla og málinu er reddað :):) er það ekki Gummi?? Það er nú að verða ansi langt síðan að við höfum slammað soleiðis saman ;)
Góða skemmtun í kvöld.
Kveðja Adda
Adda (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 20:06
Hlynur....in the old days?? Mundu við erum ekki þrítugir ennþá..erum alltaf 29 ára
Adda mín. Ójú mikil ósköp er langt síðan að við höfum fengið okkur tekíla....ég eiginlega ÞRÁI það dáldið....spurning um að kippa því í liðinn.
Kolla mín. Er enn að athuga með ferðina í nóv......læt vita sem FYRST.....er það malt og appelsín og nóa-kropp svo ég fái gistingu
. Já já, keyptu bara bjór...alltaf gott að eiga solleis..sérstaklega þar sem ég drekk svo mikinn bjór
Guðmundur Þór Jónsson, 13.10.2007 kl. 21:45
Jahh heldur seint að gefa þér einhver ráð þar sem þú ert örugglega að sofa úr þér núna í töluðum orðum hehe
Vona bara að þú hafir skemmt þér vel og það séu ekki einkatónleikar í gangi núna þennan morguninn
Sólrún, 14.10.2007 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.