30.9.2007 | 18:40
Sunnudagur til sælu.
Ég byrjaði morguninn á því að þurrka af öllu hjá mér...ryksugaði svo og loks skúraði. Tók svo allt úr skápum og þreif þá...ég er bara unaðslegur með bleiku hanskana sko Sótti svo litla frænda og við skelltum okkur í búðir, hans markmið var að fara í Leikbæ til að fá júgíó spil, við vorum í Smáralind en spilið var ekki til þar, þá var tekið á það ráð að ná í Kringluna fyrir 17 þar sem klukkan var 16:40, og viti menn..það var keyrt á þriggja stafa tölu til að ná þessu og við náðum...jú hú...en spilin voru líka uppseld í Kringlunni. Svo er ég kominn í matarboð til swestu minnar, fæ gómsætan kjúlla. Njótið vel síðasta sunnudagskvöld september-mánaðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.9.2007 | 23:47
Oh holy moly...á ég að getað sofið
Hæ hæ. Ég lenti í óskemmtilegn atviki í gær, málið er að þegar ég var að fara að sofa þá var tekið í hurðahúninn hjá mér og mér KROSSBRÁ!! Vissi ekki mitt rjúkandi ráð..þannig að ég fór í eldhúsið og sótti kjötsveðjuna mína og setti hann á náttborðið mitt svo að ég mundi nú sofna rólegur. Lögreglan bankaði upp á hjá mér um daginn og spurði hvort að ég hafi verið orðið var við innbrjótsþjófa...þá var íbúi sem hringdi og sagði við lögregluna að það væri að taka í hurðahúninn og stinga lykli inn. Þess vegna var ég hræddari sko....meina hver gæti meitt svona beauty like me![]() |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.9.2007 | 16:43
YES YES YES. Ó nei ekki þannig yes sko:)
Hæ hæ. Ég má til með að segja ykkur það að ég var með gamaldags blöndunartæki, þar sem maður þarf sjálfur að fá rétt hitastig. En það er þannig núna að ég fékk pípara til mín í gær og hann setti upp nýja blöndunartækið mitt. Við vorum um 23.30 að gera þetta...hlupum niður í kjallara til að taka vatnið af og hlupum svo aftur upp til að prófa nýja og Það VIRKAÐI!!! Svo hlupum við aftur niður til að láta vantið á aftur..bara svo að fólkið í blokkinni hefði vatn Njótið helgarinnar. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.9.2007 | 17:30
Á strætó alltaf réttinn
Hæ hæ. Ég var á leið heim úr vinnu í dag og þegar ég var að keyra hringtorgið hjá Suðurgötu og Hringbraut(var í innri hringnum) þá kom þessi stóri guli strætó og svínaði fyrir mig!!! Og ég þurfti að snar hemla niður. Ég LÁ á flautunni (með hendina sko) og blótaði og bölvaði strætóbílstjóranum í sand og ösku!! Að þessi gulu ógeð eiga alltaf réttinn!! Kannski hefði ég bara átt að láta hann klessa á mig þá hefði hann séð að ég ætti réttinn. Og ökumaðurinn í bílnum fyrir aftan mig flautaði líka, gott að fá aðstoð við það sko. En ég spyr: Ef maður lendir í árekstri við strætó er þá strætó ALLTAF í rétti???
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.9.2007 | 14:01
Helv Þvottavél
Jæja, ég lenti sko í leiðinlegu atviki á miðvikudaginn. Hvað málið varðar þá var ég að þvo þvott og ég setti allt á 40 gráður nema hvað að náttkjólinn minn sem er GULUR á litinn kom GRÆNN úr þvottavélinni ég stóð bara og GARG!! nema hvað að ég ætlaði sko ekki láta þetta koma fyrir aftur þannig að í næstu vél þá setti ég bara eina peysu og´ég var að fikta eitthvað í tökkunum á þvottavélinni og þá kom á skjáinn "14h" og ég bara já já setti vélina í gang...já nei nei, þá var vélin í 14 tíma að þvo peysuna mína!!! Mér fannst þetta ekki sniðugt hjá AEG vélinni minni. Hafið það gott.
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
16.9.2007 | 03:37
Well fyrsta djamm-bloggið.......did you miss me:)
Jamm og Jæja, Frú Fjóla hér! Það var rosalega gaman í kvöld sko. Skil samt ekki hvernig ég get sitið hér og pikkað á takka.....je dúdda mía. Allir skemmtu sér konunglega vel sko og Það voru sko teknar MYNDIR!!! OH MY GOD, segi nú ekki annað![]() |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2007 | 16:10
Jú Hú.....Gess Who........I´m Finaly Here
Jæja, þá er maður kominn á bloggið:) Ekki vildi ég vera sá eini sem bloggaði ekki. En jæja, Kvöldið í kvöld liggur flatt...Það þýðir að ég ætla að fara út að borða með æðislegu fólki á Ruby Tuesday og svo er PARTÍ hjá henni Fríðu minni í tilefni að því að yfirmaður okkar er að flytja til Horsens:( Og já ætli maður endi ekki sem FRÚ FJÓLA Ég fór í smá gönutúr í dag og lá leiðin á Subway og beint á móti Subway er vínbúð og auðvitað fór ég þangað og fékk mér ananas-brezzer...ég þurfti eitthvað til að kyngja matnum HLAKKA TIL AÐ SJÁ YKKUR ÖLL Í KVÖLD!! Hafið það gott. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Guðmundur Þór Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 29167
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar